Pantanir:
Við hjá Hallas tökum við pöntunum þegar greiðsla hefur borist. Þegar greiðsla berst er kaupanda send staðfesting í tölvupósti.
Greiðsla:
Hægt er að greiða pantanir með kreditkorti, íslensku debetkorti, netgíró eða millifærslu. Kortafærslur fara í gegnum örugga greiðslusíðu Korta, því fær Hallas aldrei kortaupplýsingar kaupanda.
Sendingarmáti:
Pantanir okkar er hægt að fá sendar með pósti eða sækja þær í pósthús á opnunartíma. Sendingarkostnaður er 6000 kr. fyrir sjúkrabörur og 1000 kr. fyrir skálmar. Pantanir eru sendar með Íslandspósti, en það tekur allt að 1 virkan dag að afgreiða pöntunina. Sendingartími er 1-4 virkir dagar.
Hjá okkur gilda afhendingar-,ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vöru. Ef valið er að sækja pöntunina til okkar á Breiðuvík 16, 112 Reykjavík, þá er það gert eftir samkomulagi.
Vöruskil:
Skilafrestur er 14 dagar frá kaupum. Vöru fæst aðeins skilað sé hún ónotuð og í upprunalegu ástandi. Tilkynna skal vöruskil á hallas.ehf@gmail.com eða í síma: 772 4646. Boðið er upp á inneignarnótu eða vöruskipti. Athugið þegar vöru er skilað ber kaupandi ábyrgð á vörunni þar til hún hefur borist okkur. Kaupandi greiðir sendingarkostnað sé vöru skilað. Sé vara endursend verður hún að berast á heimilisfang Hallas.
Hafi viðskiptavinur fengið skemmda eða ranga vöru, ber honum að upplýsa okkur um það við fyrsta tækifæri og munum við taka fulla ábyrgð á því.
Fyrirvari:
Hallas áskilar sér rétt til verðbreytinga án fyrirvara. Allar upplýsingar og verð eru birt með fyrirvara um innsláttarvillu og myndbrengl. Hallas áskilur sér rétt til að hætta við pöntun komi í ljós að varan sé vitlaust verðmerkt eða uppseld. Í þeim tilfellum er viðskiptavini endurgreitt.
Trúnaður:
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum, nema svo beri skylda gagnvart lögum.
Lög og varnarþing:
Varðandi viðskipti við okkur, sem og önnur atriði í samningsskilmálum þessum gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur milli Hallas og viðskiptavinar skal mál vegna þess rekið fyrir íslenskum dómstólum.